Þá er bara komið að því! Eða svona næstum því...
Föstudaginn 18. janúar mun ég halda bekkjarpartý fyrir ykkur, elsku dúllurnar mínar!
Þar sem ég bý í blokk og get þess vegna ekki haldið partý langt fram á nótt, væri mjög gott ef gestir gætu mætt um hálf níu, svo við höfum nú alveg örugglega nægan tíma til þess að spjalla og rifja upp gömlu góðu dagana.
Þar sem ég er, eins og mörg okkar, fátækur námsmaður, þá mun ég ekki bjóða upp á áfengi í partýinu, nema í mesta lagi smá tequila sem stendur uppi í skáp hjá mér og hefur gert í nokkurn tíma. Ég ætla samt að bjóða upp á snakk og svona, og jafnvel eiga smá birgðir af gosdrykkjum fyrir þá sem ætla að vera edrú (verður það nokkur?). Ég hef nú hálf-eignast ágætisgræjur í gegnum sambýlismann minn, svo Valli og Aðalbjörg þurfa ekki að koma með slíkt 
Ég ætla ekki að banna ykkur að koma með maka, en mæli samt ekki með því, því þannig verður allt öðruvísi andrúmsloft en ella, þið vitið alveg hvað ég meina.
Heimilisfangið er Vesturgata 50a, 101 Rvk, 4. hæð til vinstri, og það stendur Fanney og Halli á bjöllunni. Það er lyfta í húsinu svo ekki panika strax. Endilega látið vita ef þið komist, eða komist ekki, þó aðallega vegna þess að ég er forvitin.
Ef þið lendið í vandræðum með að finna húsið eða eitthvað slíkt þá er símanúmerið mitt 692-6176. Annars hef ég búið þarna síðustu 2 og hálft ár svo einhverjir ættu nú að kannast við sig
Endilega látið nú sjá ykkur!
Fanney