Heil og sæl börnin góð :þ
Á sama tíma eftir viku ætla ég að vera í rokkgellugallanum slafrandi í mig áfengi, hlægjandi af vitleysunni í Sigga og Dóra

Áður en ég get hins vegar leyft mér svoleiðis munað þá þarf ég að klára smá mál varðandi óvissuferðina.... sem bara svo þið vitið verður ótrúleg!
Mig vantar staðfestan fjölda allra sem ætla að mæta í ferðina, það þýðir ekkert að slumba á þetta, núna vantar mig tölfræðina.
Svo ég bið ykkur,
kommentið hér fyrir neðan hvort þið komið með í ferðina eða ekki! Látið líka vita ef þið verðið ekki með. Þeir sem verða ekki búnir að láta vita á sunnudagskvöldið fá persónulegt símtal frá mér

Ef einhver hefur búið undir steini þá verður ferðin
sunnudaginn 15. júní. Ég vil segja sem minnst um hvaða eld og brennistein við ætlum að láta ykkur vaða... en get þó sagt þetta að ferðin hefst kl. 14:00 og tekur allan daginn. Þið fáið nánari upplýsingar í næstu viku!
Ég vil auðvitað helst reikna með að sjá ykkur öll, veit þó þegar að Lisa Anne verður sterkt með okkur í anda, sem og Silli og Stebbi og háskólaneminn Lilja Rós.
Látið í ykkur heyra,
Aðalbjörg :þ